VISS, vinnu og hæfingarstöð á Hvolsvelli leitar eftir leiðbeinanda  

  • Post category:Legal
  • Reading time:2 mins read

 

  • VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða leiðbeinenda í 55% stöðu sem fyrst. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Hjá VISS er unnið eftir hugmyndafræðinni „Þjónandi leiðsögn“ og „Sjálfstætt líf“.  Leiðbeinendur vinna samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.

 

  • Meginverkefni:
  • Veita stuðning, einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu.
  • Umsjón verkefna starfsstöðvarinnar.
  • Veita persónulega aðstoð við athafnir daglegs lífs.
  • Skipuleggja og forgangsraða störfum sínum í samráði við viðkomandi yfirmenn.

 

  • Hæfniskröfur:
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynslu í starfi með fötluðu fólki
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og góð þjónustulund
  • Almenn tölvu kunnátta
  • Hreint sakarvottorð

Umsóknar frestur er til og með 8. apríl 2025

Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag í stöðugri sókn. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á samvinnu, virðingu og vellíðan á vinnustað.

Öllum umsóknum verður svarað.

Skildu eftir svar