Húsnæðismál
Félagslegt leiguhúsnæði
Félagslegt leiguhúsnæði er tímabundið úrræði fyrir fólk í húsnæðiserfiðleikum, sökum fjárhags- og félagslegra erfiðleika. Þær eru ætlaðar fjölskyldum og einstaklingum sem þurfa sérstaka aðstoð til að leysa bráðan vanda meðan unnið er að varanlegri lausn á húsnæðisvanda þeirra.
Sérstakur húsnæðisstuðningur
Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárstuðningur til viðbótar við húsnæðisbætur. Hann er ætlaður þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, félagslegra aðstæðna og þungrar framfærslubyrðar.
Heimilt er að samþykkja umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning þrátt fyrir að umsækjandi hafi ekki fengið samþykkta umsókn um húsnæðisbætur þegar fyrir liggur að umsækjandi er í húsnæðisleit. Greiðslur hefjast þó ekki fyrr en umsækjandi uppfyllir öll skilyrðin.
Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði: fyrir félagslegt leiguhúsnæði
- Eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
- Hafa náð 18. ára aldri á umsóknardegi.
- Uppfylla skilyrði um tekju- og eignarmörk.
- Búa við ófullnægjandi húsnæðisaðstöðu eða öryggisleysi í húsnæðismálum.
- Hafa ekki möguleika á að kaupa eigin húsnæði og/eða leigja á almennum leigumarkaði án sérstakrar aðstoðar.
- Að niðurstaða mats á félagslegum aðstæðum, samkvæmt sérstöku matsblaði, sé að lágmarki átta stig hjá einstaklingum og 10 stig hjá hjónum/sambúðarfólki. Matið er unnið af starfsmönnum Félagsþjónustunnar þar sem hliðsjón er höfð af núverandi húsnæðisaðstæðum, fjölskyldustærð, heilsufari og öðrum félagslegum aðstæðum umsækjenda.
Með umsókninni skal fylgja:
- Ljósrit af launa- og/eða bótaseðlum heimilisfólks síðustu þrjá mánuði.
- Afrit af síðasta skattframtali.
- Læknisvottorð
- Örorkuvottorð
- Afrit af kaupsamningi (ef umsækjandi eða einhver úr fjölskyldu hans keypti/seldi fasteign s.l. þrjú ár)
- Gögn um lögskilnað/sambúðarslit
- Vottorð heilbrigðisfulltrúa (ef umækjandi býr í heilsuspillandi húsnæði), ef við á.
Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði: fyrir sérstakan húsnæðisflutning
- Að umsækjandi hafi fengið samþykkta umsókn um húsnæðisbætur á grundvelli laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur.
- Að umsækjandi sé orðinn 18 ára á umsóknardegi og eigi lögheimili í einu af fimm sveitarfélögum Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu bs.
- Félagsleg staða umsækjanda og fjölskyldu hans sé metin samkvæmt viðmiðum 4. gr.
- Samanlagðar tekjur umsækjanda og annarra heimilismanna, 18. ára og eldri, séu undir efri tekjumörkum skv. 6. gr. reglna þessara.
- Samanlagðar eignir umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, á síðastliðnu ári séu ekki hærri en samkvæmt viðmiðum 6. gr.)
Sérstakur húsnæðisstuðningur
Foreldrar 15-17 ára barna sem stunda nám fjarri lögheimili og leigja herbergi á heimavist, námsgörðum hér á landi eða leiguherbergi í íbúðarhúsnæði eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi. Slíkur stuðningur er óháður tekjum foreldra og getur numið allt að 60% af leigufjárhæð, þó aldrei hærra en 25.000. Húsaleigusamningur og staðfesting á skólavist skal fylgja umsókn. Umsóknarfrestur er til 20. þess mánaðar sem fyrst er greitt fyrir.
Umsóknir um félagslegt leiguhúsnæði og sérstakan húsnæðisstuðning sendist á:
Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Suðurlandsvegi 1-3, 850 Hellu
Eða rafrænt á helgath@felagsmal.is
Hver sá sem óskar eftir stuðningi, ráðgjöf eða upplýsingum er bent á að hafa samband við ráðgjafa á skrifstofu félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu.
Ráðgjafi fjárhagsaðstoðar, félagslegs húsnæðis og sérstaks húsnæðisstuðnings er Helga Þóra Steinsdóttir.
Umsóknareyðublað fyrir félagslegt leiguhúsnæði nálgast með því að smella HÉR
Umsóknareyðublað fyrir sérstakan húsnæðisstuðning má nálgast með því að smella HÉR
Reglur um úthlutun á félagslegu leiguhúsnæði í aðildarsveitarfélögum Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu má nálgast með því að smella HÉR
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning má nálgast með því að smella HÉR
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning 15-17 ára má nálgast HÉR