VISS, vinnu og hæfingarstöð á Hvolsvelli leitar eftir leiðbeinanda
- VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða leiðbeinenda í 50% stöðu sem fyrst. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Hjá VISS er unnið eftir hugmyndafræðinni „Þjónandi leiðsögn“ og „Sjálfstætt líf“. Leiðbeinendur vinna samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.
Meginverkefni:
- Veita stuðning, einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu.
- Umsjón verkefna starfsstöðvarinnar.
- Veita persónulega aðstoð við athafnir daglegs lífs.
- Skipuleggja og forgangsraða störfum sínum í samráði við viðkomandi yfirmenn.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynslu í starfi með fötluðu fólki
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og góð þjónustulund
- Almenn tölvukunnátta
- Hreint sakarvottorð
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2024.
- Nánari upplýsingar veitir Elías Árnason deildarstjóri VISS á Hvolsvelli viss@hvolsvollur.is
- Umsóknum skal skilað á netfangið svava@felagsmal.is eða anton@hvolsvollur.is
Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag í stöðugri sókn. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á samvinnu, virðingu og vellíðan á vinnustað.
Öllum umsóknum verður svarað.