Miðstöð um auðlesið mál og Landskjörstjórn hafa útbúið auðlesnar upplýsingar um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Markmið okkar er að tryggja að allir hafi aðgang að skýrum upplýsingum um lýðræðisleg réttindi sín.
Í bæklingnum er fjallað um:
· Hvað kosningarnar snúast um.
· Muninn á ESB og EES.
· Hvað aðildarviðræður eru.
· Hvað gerist ef þjóðin segir já.
· Hvað gerist ef þjóðin segir nei.
· Og margt fleira.
Á síðu Landskjörstjórnar eru svo upplýsingar um hvernig á að kjósa (skref fyrir skref).

