
Velkomin á vef Félagsþjónustunnar
Hvert á að hafa samband ef áhyggjur af barni koma upp? Viljir þú tilkynna um aðstæður barns getur þú hringt í síma 487-8125 á dagvinnutíma og fengið að ræða við félagsráðgjafa. Komi upp neyðartilvik eftir að skrifstofu hefur verið lokað, getur þú hringt í 112 og sagt frá áhyggjum þínum. Einnig er tekið á móti tilkynningum á netfangið barnavernd@felagsmal.is
Telurðu að þú þurfir aðstoð eða stuðning? Telur þú þig þurfa ráðgjöf vegna vanlíðan þinnar og eða fjölskyldu þinnar eða vegna fjárhagsáhyggja en veist ekki hvert þú átt að snúa þér – hafðu samband við ráðgjafa félagsþjónustu RVS á netfangið felagsmal@felagsmal.is. Ert þú eða telur þú að þú sért beitt/ur ofbeldi, vanrækslu eða órétti? Hafðu samband við ráðgjafa félagsþjónustu RVS á netfangið felagsmal@felagsmal.is

Barnavernd
Velferð barna á svæði Rangárvalla- og Vesturskaftafellssýslu skiptir höfuðmáli. Mál eru unnin samkvæmt lögum um barnavernd nr. 80/2002.

Fjárhagsaðstoð
Áður en til fjárhagsaðstoðar kemur þarf einstaklingur að koma í viðtal hjá ráðgjafa þar sem farið er yfir fjármál og aðstæður viðkomandi.

Málefni eldra fólks
Félagsþjónustan sér um ráðgjöf og leiðbeiningar til eldra fólks og aðstandenda þeirra varaðandi ýmis persónuleg mál, réttindamál og þjónustuúrræði fyrir eldra fólk

Málefni fatlaðs fólks
Félagsþjónustan ber ábyrgð á og sér um framkvæmd þjónustu við fatlað fólk og fjölskyldur þeirra og sinnir eftirliti með þjónustunni.
Tilkynningar
Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir laust til umsóknar starf teymisstjóra í barnavernd og farsældarþjónustu. Um er að ræða 100 % starfshlutfall. Næsti yfirmaður er...
Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, auglýsir eftir leikskólaráðgjafa í hópinn. Eftirtalin sveitarfélög reka Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu: Ásahreppur, Rangárþing Ytra, Rangárþing Eystra,...
Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu auglýsir eftir starfsfólki til að sinna stoðþjónustu í Vík.Starfið felst í að efla ungan dreng við daglegar athafnir og félagslegan stuðning,...
Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir eftir verktaka til að sinna hlutverki verkefnastjóra til að stýra innleiðingu á lögum um samþætta þjónustu í...
VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða leiðbeinenda í 55% stöðu sem fyrst. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Hjá VISS...
Sérstakur húsnæðisstuðningur Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu heldur utan um afgreiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings sem sveitarfélögum er skylt að greiða samkvæmt lögum um húsnæðisbætur...

