Disability services
Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu ber ábyrgð á og sér um framkvæmd þjónustu við fatlað fólk og sinnir eftirliti með þjónustunni á þessu svæði. Þjónusta við fatlað fólk er unnin á grundvelli laga um málefni fatlaðs fólks og miðar að því að tryggja fötluðu fólki jafnrétti, gera því kleift að lifa eðlilegu lífi og skapa skilyrði fyrir þau til að taka virkan þátt í lífinu.Veitt er margvísleg þjónusta. Má þar nefna stuðningur og ráðgjöf við fatlað fólk og foreldra fatlaðra barna, félagsleg liðveisla, stuðningsfjölskylda fyrir fötluð börn, sértæk ráðgjöf, skammtímavistun, hæfing, vernduð vinna, búsetuúrræði og ferðaþjónusta. Dögg Þrastardóttir, félagsráðgjafi, sinnir málaflokki fatlaðs fólks á svæðinu og á hún sæti í mörgum teymum í leik- og grunnskólum vegna barna með sértækar þarfir og sækir reglulega fundi vegna þeirra. Félagsmálastjóri er einn þriggja félagsmálastjóra á Suðurlandi sem saman skipa Þjónusturáð málaflokks fatlaðs fólks á Suðurlandi.
Sértæk ráðgjöf til fjölskyldna fatlaðra barna
Meginverkefni ráðgjafarþroskaþjálfa er að efla og styðja foreldra vegna barna þeirra með fötlun. Þjónustan nær til fjölskyldna barna yngri en 18 ára og veitir hann eftirfarandi þjónustu, allt eftir óskum foreldranna:
- Upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi og þjónustu.
- Ráðgjöf við val á viðurkenndum leiðum til að auka og efla færni barna með fötlun.
- Ráðgjöf um íhlutunarleiðir, uppeldi og þjálfun barnanna á heimili þeirra.
- Ráðgjöf varðandi athafnir daglegs lífs, félagsþátttöku, skóla- og/eða atvinnuþátttöku, sumarúrræði o.fl.
- Þátttaka í þjónustuteymi barnsins og stuðningur foreldra í teymisstarfi.
- Þjálfun og snemmtæk íhlutun til ungra barna á heimili þeirra.
- Samstarf við sérfræðinga vegna barnsins.
- Fræðsla til aðstandenda, tengslastofnanna og samstarfsfólks um fatlanir, íhlutunarleiðir og aðstæður barna og ungmenna með fötlun og fjölskyldna þeirra.
Sértæk ráðgjöf heim
Ráðgjöf þroskaþjálfa til foreldra á heimili þeirra miðast við þarfir barna með fötlun fyrir umönnun og þjálfun og að gera foreldrum kleift að nýta sértækar íhlutunarleiðir við uppeldi og umönnun barna sinna. Lögð er áhersla á að ráð og leiðbeiningar falli að aðstæðum fjölskyldunnar og hafi velferð hennar í huga. Ráðgjöfin beinist helst að daglegum athöfnum fjölskyldunnar m.t.t þarfa barnanna, samræmingu vinnubragða milli skóla og heimilis, leiðbeininga vegna hegðunar barnanna og samskipti þeirra, fræðsla og val á íhlutunarleiðum, forgangsröðun á þjálfun/kennslu barnanna, fræðsla um fatlanir fyrir foreldra og aðra nákomna börnunum, greining á þörf fyrir þjónustu og frekari ráðgjöf sérfræðinga. Hugar að líðan foreldra og systkina og aðstoðar fjölskylduna við að leita ráða vegna þess.
Ráðgjöf þroskaþjálfa og þjálfun heim til ungra barna byggir á hugmyndum snemmtækrar íhlutunar sem leggur áherslu á markvissar aðgerðir til að hafa sem mest áhrif á þroskaframvindu barns eins snemma á lífsleiðinni og unnt er. Í samstarfi við foreldra og greiningaraðila er unnið að mati á stöðu barnsins og markmiðum þjálfunar. Þjálfun fer fram á heimili barnsins, þar til leikskólaganga hefst.
Umsókn um sértæka ráðgjöf er send til félagsþjónustunnar í heimabyggð barnsins, á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna hér til hliðar á heimasíðunni.
Réttindagæslumaður fatlaðs fólks
Hlutverk réttindagæslumanns er að veita fötluðu fólki, sem á erfitt með að gæta réttinda sinna sjálft, aðstoð og ráðgjöf. Fatlað fólk getur leitað til réttindagæslumanns með allt sem varðar réttindi þess, fjármuni og önnur persónuleg mál.Telji hann sjálfur eða einhver sem stendur honum nærri að réttindi hans séu ekki virt sem skyldi skal hafa samband við réttindagæslumann. Þeim ber að fylgjast með högum fatlaðs fólks á sínu svæði og koma með ábendingar til sveitarfélaga, stofnana og annarra aðila á svæðinu um það sem betur má fara. Eins skulu réttindagæslumenn kynna sig og hlutverk sitt og standa fyrir fræðslu fyrir fatlaða einstaklinga og þá sem veita þeim þjónustu. Þeir skulu hafa eftirlit með persónulegum talsmönnum fatlaðra samkvæmt reglugerð.
Réttindagæslumaður fatlaðs fólks á Suðurlandi og Vestmannaeyjum er Sigrún Jensey Sigurðardóttir og er hún með skrifstofu í Sandvíkureti við Bankaveg á Selfossi. Hægt er að hafa samband í síma 858-2142 eða með tölvupósti sigrun@rett.vel.is.
Stuðningur vegna skertrar starfsgetu
Vinnumálastofnun býður upp á þjónustu við öryrkja og aðra atvinnuleitendur með skerta starfsgetu. Þjónustan er tvískipt og fer eftir þjónustuþörf hvers og eins. Annars vegar er um að ræða sérhæfða ráðgjöf og stuðning við atvinnuleitina og hins vegar þjónustu AMS, ,,Atvinnu með stuðningi“ sem felst í aðstoð við atvinnuleitina og stuðningi og eftirfylgni á vinnustað. Sótt er um stuðninginn hér.
Upplýsingar um málefni fatlaðra
Umsóknir sendist á:
Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Suðurlandsvegi 1-3
850 Hellu
Eða rafrænt á petrina@felagsmal.is
Ársskýrslu þjónusturáðs 2015 má sjá hér aða neðan en einnig er hægt að sækja skjalið með því að smella HÉR