fjarhagsadstod

Financial aid

Áður en til fjárhagsaðstoðar kemur þarf einstaklingur að koma í viðtal hjá félagsráðgjafa þar sem farið er yfir fjármál og aðstæður viðkomandi. Hægt er að panta viðtalstíma í síma 487-8125 eða með því að senda okkur póst á helgalind(hja)felagsmal.is.

Miklir fjárhagserfiðleikar veita einir og sér ekki rétt til fjárhagsaðstoðar og því þarf að greina hvert mál vandlega í samvinnu við viðkomandi. Í framhaldi þarf að gera áætlun um hvernig unnt sé að bæta úr stöðunni og áhersla félagsþjónustunnar er á hjálp til sjálfshjálpar.

Fjárhagsaðstoð er neyðarúrræði og það er eitt af meginverkefnum ráðgjafa að aðstoða fólk við að leita varanlegra lausna til framfærslu.

Upplýsingar um Fjárhagsaðstoð

Umsókn um fjárhagsaðstoð má sjá hér aða neðan en einnig er hægt að sækja skjalið með því að smella HÉR

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Reglur um fjárhagsaðstoð má sjá hér aða neðan en einnig er hægt að sækja skjalið með því að smella HÉR

Reglur um fjárhagsaðstoð

Reglur um þjónustu við fjölskyldur má sjá hér aða neðan en einnig er hægt að sækja skjalið  með því að smella HÉR

Reglur um þjónustu við fjölskyldur

Umsókn fyrir sérstökum íþrótta- og tómstundarstyrk vegna áhrifa af Covid-19 má sjá með því að smella HÉR

Umsóknareyðublað  vegna frístunda- og tómstundastyrks má sjá hér aða neðan en einnig er hægt að sækja skjalið með því að smella HÉR

Umsóknareyðublað vegna frístunda- og tómstundastyrks

Umsóknir sendist á:
Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Suðurlandsvegi 1-3
850 HelluEða rafrænt á felagsmal(hja)felagsmal.is