Málefni eldra fólks

Meðal verkefna Félagsþjónustunnar eru ráðgjöf og leiðbeiningar til aldraðra og aðstandenda þeirra varaðandi ýmis persónuleg mál, réttindamál og þjónustuúrræði fyrir aldrað fólk. Þjónustuúrræði eru meðal annars félagsleg heimaþjónusta, heimsendur matur eða matur á dvalarheimili.

Deildarstjóri félagslegrar heimaþjónustu Félagsþjónustu Rangárvalla – og Vestur Skaftafellssýslu tekur við umsóknum um heimsendan mat frá Ásahrepp, Rangárþingi Ytra og Eystra og umsóknum varðandi máltíð sem snædd er á Klausturhólum á Kirkjubæjarklaustri eða Hjallatúni í Vík. Einnig er hægt að prenta út umsókn og senda til félagsþjónustunnar.

Hver sá sem óskar eftir stuðningi, ráðgjöf eða öðru er bent á að hafa samband við ráðgjafa á skrifstofu félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu.

Deildarstjóri félagslegrar heimaþjónustu er Aðalheiður K. Steinadóttir sími: 487-8125 og netfang: adalheidur@felagsmal.is

Umsókn um félagslega heimaþjónustu  má nálgast með því að smella HÉR

Reglur um félagslega heimaþjónustu má nálgast með því að smella HÉR

 

Gjaldskrá 2024 má nálgast með því að smella HÉR

Reglur um heimsendingu matar má nálgast HÉR

Reglugerð um færni – og heilsumat vegna dvalar og hjúkrunarrýma má sjá með því að smella HÉR

Eyðublað um færni – og heilsumat má sjá með því að smella HÉR